05.10.1934
Neðri deild: 2. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 29 í B-deild Alþingistíðinda. (82)

Kosninga fastanefnda

Hannes Jónsson:

Það er nokkurnveginn víst, að fyrir þessu þingi liggja mörg mál, er varða landbúnaðinn. Það mun því verða mikið verkefni, sem þessi n. hefir með höndum. Ed. hefir viðurkennt þetta með því að fjölga um 2 menn í n., til þess að Bændafl. gæti fengið þar sæti. Ég fer nú fram á það fyrir hönd Bændafl., að fjölgað verði í n. um 2 menn til þess að flokkurinn geti fengið þar sæti.

Ég leyfi mér að biðja hæstv. forseta að leita atkv. d. um þetta.