14.11.1934
Efri deild: 38. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 744 í B-deild Alþingistíðinda. (859)

27. mál, sláturfjárafurðir

Magnús Jónsson:

Ég vildi aðeins gera eina fyrirspurn til hæstv. ráðh. áður en hann fer af fundi. Frsm. meiri hl. sagði í ræðu þér í gær, að Rangárvallasýsla hefði hagnazt um 60 þús. kr. og Árnessýsla um 90 þús. kr. á kjötsölulögunum að þessu sinni. (PHerm: Ekki rétt, - Rangárvallasýsla 40 þús. og Árnessýsla 60 þús.). Ég tek fúslega þessari leiðréttingu. En ef þetta er rétt, vildi ég fá það staðfest hjá hæstv. ráðh., en ef það er rangt, vildi ég fá því slegið föstu, að formaður flokks hans hafi farið hér með fleipur.