05.10.1934
Neðri deild: 2. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 30 í B-deild Alþingistíðinda. (87)

Kosninga fastanefnda

Hannes Jónsson:

Það er nokkur munur á því, hvort flokkurinn veitir heimild til þess, að viðbótarsæti, sem fást í n., verði veitt öðrum flokki, eða hvort hann tekur mann úr n., sem hann áður var búinn að ákveða þangað. Það er því ólíkt á komið, að bætt sé við 2 mönnum í n. og Sjálfstfl. afsali sér rétti til þessarar uppbótar eða hann kippi manni til baka úr n.

Ég ætla ekki að fjölyrða frekar um þetta, og læt þá skeika að sköpuðu, hvernig það fer.