19.10.1934
Neðri deild: 14. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 761 í B-deild Alþingistíðinda. (889)
16. mál, eldspýtur og vindlingapappír
Frsm. minni hl. (Jakob Möller) [óyfirl.]:
Það var aðeins til að slá því föstu, að þessar neyðarráðstafanir, sem ég var að segja, að ýmsar þjóðir gripu nú til, svo sem Danir og Þjóðverjar, þær mörkuðu ekki straum tímans. Það er því algerður misskilningur hjá hv. þm. V.-Ísf., að slíkt sýni, hvert straumur tímans stefnir, heldur grípa menn til slíkra ráðstafana út úr neyð, af því að þeir halda í svipinn, að það sé betra, en enginn heldur, að það sé heppilegast í framtíðinni. En þessi frv., sem hér liggja fyrir, eiga ekki að vera neyðarráðstöfun vegna yfirstandandi viðskiptaörðugleika, heldur framtíðarráðstöfun þeirra flokka, sem að þeim standa, og þá er að gera sér grein fyrir, hvort straumur tímans réttlætir þá stefnu, sem kemur fram í þeim frv., en þar að lúta þau ummæli Staunings, sem ég tók upp. En þrátt fyrir þær neyðarráðstafanir, sem hafa verið gerðar í Danmörku, þá veit ég ekki til, að þar hafi komið fram lagafrv. svipuð þessum hér, sem eiga þó ásamt öðrum einokunarfrv. að vera stefnumál framvegis hjá stjórnarflokkunum.
Það er því tvímælalaust rétt, sem ég sagði, að straumur tímans rennur á móti stefnu þessara sósíalista, þó að þeir vilji nú nota sína valdaaðstöðu til að knýja þessi frv. fram. Þeir halda, að sú stefna falli saman við straum tímans, en ég held, að hún fari í gagnstæða átt.