19.11.1934
Neðri deild: 40. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2829 í B-deild Alþingistíðinda. (96)

Afgreiðsla þingmála

Garðar Þorsteinsson:

Herra forseti! 6. okt. kom ég fram með frv. um virkjun Fljótaár. Málinu var vísað til n. 11. okt., en síðan hefir það ekki komið fram, þrátt fyrir ítrekuð loforð frá formanni n. Ég vil leyfa mér að skora á hæstv. forseta að hlutast til en, að málið komist úr nefnd, þar sem mér virðist það búið að vera þar nógu lengi.