17.10.1934
Neðri deild: 12. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 791 í B-deild Alþingistíðinda. (975)
22. mál, verkamannabústaðir
Thor Thors:
Hv. 2. þm. Reykv. vildi bera brigður á það, sem ég hélt fram, að 1., sem nú gilda, geri ráð fyrir því, að fleiri en eitt byggingarfélag starfi á sama stað, og ætlaði hann að sanna mál sitt með því að lesa upp gr. í l., en gerði það á þann hátt - sem náttúrlega var ekki hægt að gera á annan hátt -, að hann sannaði mitt mál, því í gr. segir: „byggingarsjóður veitir lán til byggingarfélaga“. Það er fleirtala, sem hér er notuð, enda þótt hér sé verið að tala um byggingarsjóð innan eins kaupstaðar.
Hv. þm. var eitthvað að tala um fjandskap, sem sjálfstæðismenn hefðu sýnt í byggingarmálum Rvíkur. Þetta er einkennileg staðhæfing, þegar þess er gætt, að Rvík er eina bæjarfélagið, sem enn hefir ráðizt í bygging verkamannabústaða. Og að hægt hefir verið að leggja fé til verkamannabústaða í Rvík, stafar einungis af því, að meiri hl. í bæjarstj. hefir verið sjálfstæðismenn. En þar, sem jafnaðarmenn hafa ráðið - skoðanabræður hv. 2. þm. Reykv. - eins og á Ísafirði og í Hafnarfirði, hefir ekkert fé safnazt í byggingarsjóði. (HV: Það er verið að byggja í Hafnarfirði. - JakM: Féð hefir étizt upp jafnóðum). Þá staðfesti hv. þm., að byggingarfélag verkamanna hefði átt völ á lóð í Austurbænum, en hefði ekki viljað nota hana. Hann gaf um, að allir myndu eiga aðgang að þessu félagi hér í Rvík, sem er auðvitað rétt. En formennska hans er með þeim hætti, að fjöldi verkamanna óskar ekki að taka þátt í félaginu af þeim sökum. Annars var erfitt að skilja vissan hluta í ræðu hv. þm., því að hann sagði, að við sjálfstæðismenn værum að berjast fyrir eyðileggingu þessa máls með einræði. Það eru einmitt jafnaðarmenn, sem stefna að einræði í þessu máli með því að leyfa mönnum ekki að mynda frjálsan félagsskap, heldur vilja þvinga alla undir forráð og formennsku hv. 2. þm. Reykv. En ég skil í rauninni ekki alla þá andstöðu, sem kemur fram gegn þessari brtt. okkar, því að ég geri ráð fyrir, að verði samþ. sú brtt., sem fram fékkst í n. um skipun á stj. sjóðsins, þannig að í hana skuli kosnir fjórir menn með hlutfallskosningu í Sþ., en að einn sé skipaður af atvmrh., þá sé það næstum því tryggt, að stjórnarflokkarnir fái meiri hl. í stj. byggingarsjóðsins og að aðallega verði það þá sósíalistar. Hafa þeir þá eftir sem áður í hendi sér að fjandskapast gegn félagi sjálfstæðra verkamanna, þar sem þeir koma til með að ráða, hvaða félögum sé lánað. Og ef sú ósk þeirra skyldi rætast, að það sýndi sig, að hús byggingarfélags sjálfstæðra verkamanna yrðu í reyndinni dýrari eða óheppilegri en byggingar félags sósíalista, gætu þeir gefið fjandskap sínum lausan tauminn. En að óreyndu finnst mér, að þeir ættu að lofa félaginu að lifa áfram. En ef einhverjir hv. dm. kynnu að telja það til bóta á brtt. okkar, að við hana yrði skeytt, að ekki skyldu fleiri byggingarfélög verða starfandi en þau, sem þegar eru stofnuð, þá geri ég ráð fyrir, að við sjálfstæðismenn myndum fúsir til samkomulags um það.
Hæstv. fjmrh. ætla ég ekki að svara. Ég sé nú ekki, hvort hann er í d.; það er stundum erfitt að sjá það. Hann sagði, að mikill hluti kjósenda Sjálfstfl. fylgdi honum af misskilningi. Ég ætla ekki að deila um þetta. Ég hygg, að í þeim umr. myndi hvort éta úr sínu. En það voru ýmsir, sem sögðu, er þeir fréttu, að þessum unga manni hefði verið falið að gegna fjmrh.embættinu, að annaðhvort væri hér um fjármála„geni“ að ræða eða þetta hafi verið byggt á misskilningi. Ég fyrir mitt leyti er þess fullviss, að hér hefir verið um misskilning að ræða.