19.11.1934
Neðri deild: 40. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2830 í B-deild Alþingistíðinda. (98)

Afgreiðsla þingmála

Hannes Jónsson:

Ég vil endurtaka beiðni mína um það, að frv. það, er ég flutti hér snemma á þinginu um framlenging á gildi l. um vaxtatillag, fari að koma fyrir deildina frá landbn. Ég vænti þess, að hæstv. forseti krefji n. um skil, þar sem nú er meira en mánuður síðan hún fékk málið í hendur.