16.03.1935
Efri deild: 27. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 732 í B-deild Alþingistíðinda. (1060)

52. mál, Söfnunarsjóður Íslands

Magnús Guðmundsson:

Ég ætla einungis að svara hv. 2. þm. Eyf. því, að Söfnunarsjóður á hægt með að losa sig við sín lán án þess að taka jarðirnar, sem eru að veði. Söfnunarsjóður þarf ekki annað en benda skuldunautum sínum á að taka veðdeildarlán og greiða sjóðnum með veðdeildarbréfum. — Ég skal svo ekki lengja umr. um þetta frekar, þær eru orðnar það langar.