26.03.1935
Efri deild: 35. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 812 í B-deild Alþingistíðinda. (1178)

76. mál, flutningur á kartöflum

Frsm. (Bernharð Stefánsson):

Það er ekki margt um þetta mál að segja. Landbn. leggur til, að frv. verði samþ. óbreytt. Þó skrifa 2 nm. undir nál. með fyrirvara, og gera þeir að sjálfsögðu grein fyrir því, í hverju sá fyrirvari er fólginn. Engar till. eru fram komnar við frv. þetta, og hefi ég því ekki fleira fram að taka, en legg til, að frv. verði samþ. og vísað til 3. umr.