12.12.1935
Neðri deild: 97. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2422 í B-deild Alþingistíðinda. (129)

Afgreiðsla þingmála

Sigurður Kristjánsson:

Það er út af frv. til l. um að afnema útflutningsgjald af sjávarafurðum, að ég vildi segja nokkur orð. Þetta frv. er borið fram hér 30. okt. síðastl. og að lokinni 1. umr. var því vísað til n., en hún gat ekki orðið sammála um það. Minni hl. hefir gefið út álit 26. f. m., en álit frá meiri hl. er enn ókomið Nú vil ég spyrjast fyrir um það hjá hæstv. forseta, hvort hann teldi ekki rétt, að þetta mál yrði tekið til meðferðar á næsta fundi í þessari hv. d. þetta er svo merkilegt mál, að ég tel ekki sæmilegt, að það fái slíka meðferð og vil eindregið mælast til, að það verði tekið á dagskrá til þess að það geti annaðhvort náð samþykki hv. d. eða verði fellt.