09.03.1935
Neðri deild: 29. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 871 í B-deild Alþingistíðinda. (1320)

74. mál, Skuldaskilasjóður vélbátaeigenda

Thor Thors:

Ég geri ráð fyrir, að 8. málið á dagskránni (frv. um atvinnudeild og rannsóknarstofnun við Háskóla Íslands) eigi einnig að ganga hér undir atkv. Það er nú nokkuð fámennt í d., en ég sem flm. þess mun ekki hafa á móti, að atkvgr. fari fram, þar sem mér skildist á hv. þm. Hafnf., að samkomulag væri um að leyfa því máli að ganga til 2. umr. Eins munum við sjálfstæðismenn þá ekki setja okkur á móti því, að það mál, sem nú liggur fyrir, fari til 2. umr., því ég vænti, að samið verði um bæði þessi mál í n.