17.12.1935
Neðri deild: 101. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2423 í B-deild Alþingistíðinda. (136)

Afgreiðsla þingmála

Gísli Guðmundsson:

Fyrst farið er að lýsa eftir málum, sem ekki eru komin á dagskrá, þá vil ég minna á, að ég hefi ásamt tveim öðrum þm. flutt frv. til laga um útgerðarsamvinnufélög. Frv. var vísað til sjútvn. og hefir verið afgr. frá þeirri n., svo að það ætti að vera hægt að taka það fyrir nú. Ég vildi minna á þetta, því að ég heyri, að þm. eru að lýsa eftir málum, sem skemmra eru komin. Ég vil beina því til hæstv. forseta að taka þetta mál á dagskrá á undan yngri málum.