27.03.1935
Neðri deild: 39. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 940 í B-deild Alþingistíðinda. (1361)

74. mál, Skuldaskilasjóður vélbátaeigenda

Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Ég vil mælast til þess við hv. forseta, að hann fresti ekki atkvgr., þar sem farið er að líða svo mjög að þingfrestun. Ég vil, að málið verði afgr. á þessum hl. þingtímans. En ég ottast, ef atkvgr. er frestað, að málið geti ekki orðið afgr.