14.03.1935
Neðri deild: 28. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1067 í B-deild Alþingistíðinda. (1478)

78. mál, stofnun atvinnudeildar við Háskóla Íslands

Forseti (JörB):

Það er komin fram ósk um, að málinu verði aftur vísað til allshn. Að vísu er það flutt af meiri hl. n., og það er út af fyrir sig rétt, að þá er ekki venja að vísa því aftur til n. En ég vil nú til samkomulags mælast til þess, að hv. form. allshn. taki það aftur til athugunar í n. án þess að því verði formlega vísað þangað, og vona ég, að það geti leitt til sátta og samkomulags.