15.03.1935
Neðri deild: 29. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2441 í B-deild Alþingistíðinda. (159)

Trúlofun krónprinsins

forseti (JörB):

Forsetum hefir borizt skeyti frá konungi þess efnis, að krónprinsinn og Ingrid Svíaprinsessa hafi opinberað trúlofun sína. Forsetar hafa sent konungshjónunum heillaóskaskeyti.