02.04.1935
Neðri deild: 43. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1146 í B-deild Alþingistíðinda. (1724)
95. mál, gagnfræðaskóli
Pétur Ottesen:
Ég á hér brtt. við 1. gr. þessa frv., og ástæðan til, að ég flutti hana, er sú, að ég get ekki fellt mig við það ákvæði 1. gr., að ríkissjóður sé skyldugur að leggja fram fé án þess að það sé ákveðið í fjárl., ef viðkomandi kaupstaðir óska þess. Eins get ég ekki fellt mig við það, að ef ríkið heimtar það, verði bæirnir að leggja fram fé til skólabyggingar. Ég hefi þess vegna flutt svo hljóðandi brtt. á þskj. 259: „Við 1. gr. Greinina skal orða svo: Aftan við 3. gr. laganna bætist: Hluti ríkissjóðs af stofnkostnaði greiðist eftir því sem fé er veitt til þess í fjárlögum, enda sé tryggt framlag á móti.“ Með því að taka þessi ákvæði upp í lögin um gagnfræðaskóla njóta þeir nákvæmlega sama réttar og héraðsskólarnir um framlag úr ríkissjóði. Ég sé enga ástæðu til að gera upp á milli þessara skóla með því að gera rétt gagnfræðaskóla í kaupstöðum, eða þeirra, sem að þeim standa, meiri en héraðsskólanna um að fá fé til bygginganna, og vona því, að hv. þm. samþ. brtt. mína. Mér finnst bezt samræmi þarna á milli eins og gert er ráð fyrir í brtt. mínum, og ef menn geta fallizt á, að svo sé, þá samþ. þeir hana. Skal ég svo ekki orðlengja frekar þar um.