11.11.1935
Neðri deild: 70. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1152 í B-deild Alþingistíðinda. (1762)

127. mál, Skuldaskilasjóður vélbátaeigenda

Frsm. (Finnur Jónsson):

Þetta frv. er komið frá hv. Ed. og var upphaflega flutt þar eftir tilmælum stj. skuldaskilasjóðs. Sjútvn. hefir athugað, frv., og er sammála um að leggja til, að það verði samþ. með þeirri breyt. við 2. gr., að í þrotabúi eða skuldafrágöngubúi lántakanda skuli lán úr skuldaskilasjóði njóta forgangsréttar samkv. 84. gr. skiptalaganna 1 stað 81. gr. eins og frv. gerir ráð fyrir. Eins og frv. kom frá Ed. áleit n., að það gengi fulllangt í því efni. Hefir hún átt tal við form. skuldaskilasjóðs, og taldi hann sanngjarnt að gera þessa breyt. á frv. frá því, sem það kom frá Ed.

Að öðru leyti leggur n. til, að frv. verði samþ. óbreytt.