29.03.1935
Neðri deild: 40. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1185 í B-deild Alþingistíðinda. (1808)

56. mál, bæjargjöld á Ísafirði

Garðar Þorsteinsson:

Að sjálfsögðu er ekkert hægt við því að segja, þótt hæstv. forseti láti atkvgr. fara fram að umr. loknum, en án þess að ég vilji væna hann um hlutdrægni, efast ég samt um, að hann leti atkvgr. fara fram, ef þrjá af hans flokksmönnum vantaði í hv. d., en nú vantar þrjá hv. þm. úr Sjálfstfl., eins og hæstv. forseti sér.