29.03.1935
Neðri deild: 40. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1186 í B-deild Alþingistíðinda. (1809)

56. mál, bæjargjöld á Ísafirði

Finnur Jónsson:

Vegna þeirra tafa, sem þetta mál hefir orðið fyrir, get ég ekki fallizt á, að atkvgr. um það verði frestað. Það er kunnugt, að fjöldi hv. þm. er veikur, og sumir hanga aðeins uppi, svo að það er ómögulegt að segja, hvernig verður hér umhorfs á morgun. Ég vil því óska, að atkvgr. verði látin fara fram núna.