21.03.1935
Neðri deild: 34. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1229 í B-deild Alþingistíðinda. (1882)

50. mál, bæjargjöld í Vestmannaeyjum

Thor Thors:

Ég get ekki látið það hafa nein áhrif á mig, þó allflestir hv. sósíalista séu af einhverjum ástæðum ekki viðstaddir í d., hvort sem það er gert til þess að tefja framgang þessa máls og annara. Þetta kemur þó einkennilega heim við það, þegar þeir eru að bregða andstæðingum sínum um, að þeir tefji störf þingsins, Ég greiði því atkv. um málið og segi já.