20.11.1935
Efri deild: 74. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1236 í B-deild Alþingistíðinda. (1908)

50. mál, bæjargjöld í Vestmannaeyjum

Forseti (EÁrna):

Út af þeim tilmælum hv. 4. landsk., að ég taki málið út af dagskrá, þá vil ég taka það fram, að ég sé mér það ekki fært. Þetta mál er búið að liggja alllengi fyrir þinginu og búið að ganga í gegnum fimm umr. Ég sé því ekki, að ég hafi neinn rétt til að stöðva mál, sem komið hefir fram, nema að láta d. fá tækifæri til þess að greiða atkv. um það, og fer því fram atkvgr. um málið.