07.11.1935
Neðri deild: 67. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1260 í B-deild Alþingistíðinda. (1934)

156. mál, erfðaábúð og óðalsréttur

Frsm. (Bjarni Ásgeirsson):

Það er ekki nauðsynlegt, að þessi brtt. sé borin fram við þessa umr., þar sem eftir er ein umr. Vil ég því fara fram á það við hv. flm. brtt., að hann taki hana aftur til 3. umr., svo að tækifæri gefist til þess að athuga málið í nefnd.