15.02.1935
Neðri deild: 1. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2454 í B-deild Alþingistíðinda. (201)
Starfsmenn þingsins
Bergur Jónsson:
Það getur vel verið, að hæstv. forseta, eða hæstv. forsetum yfirleitt, finnist hv. þm. ekkert koma þetta mál við, og þeir hafa fullkomlega rétt til þess að halda því fram, því þeirra er valdið. Hitt er annað mál, að ég vildi benda hæstv. forseta á, að það mundi ekki þykja rétt að farið út á við, ef núna, án þess að fullkomin yfirlýsing hafi verið gefin um það, að einungis yrðu teknir menn innan ákveðins aldurstakmarks, væri sparkað öllum gömlu vörðunum, hvort sem þeir hafa staðið sig vel í stöðu sinni eða ekki. Forsetarnir geta vitanlega gert það, sem þeim sýnist í þessu efni, en hitt mun mörgum liggja nærri að viðurkenna, að þm. hafi e. t. v. líka eitthvað hér um að segja og sé a. m. k. ekki alveg sama, hvernig að er farið. Ég segi fyrir mig persónulega, að ég vissi, að á seinasta þingi var þeim starfsmönnum, sem þá voru hér utandyra, gefin dálítil aðvörun um, að svo kynni að fara, að einungis yngri menn yrðu teknir næst. Út af fyrir sig væri ekkert við því að segja, þó slík regla væri tekin upp. Hinsvegar kom nú þingið saman miklu fyrr en búizt var við; mennirnir eru hér allir til reiðu og bjuggust við, af því þeir fengu enga frekari bendingu, að þeir myndu fá störfin. Það mundi því koma erfiðlegar við þá heldur en aðra umsækjendur, ef þeim yrði ekki veitt þau. Ég vil því fyrir mitt leyti, þó ég búist ekki við, að hæstv. forsetar taki mikið mark á mínum till. í þessu máli, henda þeim á það, að ég tel þá aðferð mannúlegri og best vit, að hún yrði minna kritiseruð út á vit, ef þeir tækju nú í þetta sinn þá starfsmenn, sem áður hafa verið, en ganga síðan hreint til verks, ef alvara er að taka upp einhver ný princip í þessu máli, og lýsa yfir, að þeirra muni verða gætt framvegis. Þá búast hlutaðeigandi menn ekki við að fá starfið aftur. Ég veit af samtölum við hæstv. forseta og hv. þm., og af þeirri kynningu, sem ég hefi haft af dyravörðunum, að það er engin sérstök ástæða til þess að neita þeim um starfið, nema það sé meiningin að fara að búa til einskonar varalögreglu til þess að vernda okkur þm. En ég held, að nægilegt sé af lögreglu hér í Reykjavík til þess að hægt sé að smala liði í gangana til þess að vera til taks, ef einhver ótti vofði yfir Alþingi vegna einhverra óróaseggja. Ég vil því, án þess ég ætlist til, að hæstv. forsetar leggist svo lágt að taka tillit til minna orða út af fyrir sig, benda á, að það mun verða vinsælla að láta þá menn, sem starfað hafa við þingið og engir hafa kvartað undan að hafi svikizt um við störf sin, fá störfin að þessu sinni, en fara ekki að smala saman einhverjum öðrum mönnum, sem engin reynsla er komin á. Ég hefi fengið þær upplýsingar, að um 80 manns hafi sótt um þessi störf. Gæti orðið nokkuð erfitt fyrir hæstv. forseta að velja á milli þeirra allra, dálítið erfiðara heldur en að láta standa svo um þetta þing, hversu stutt eða langt sem það verður, að láta hina gömlu starfsmenn fá störfin áfram, ef ekki hafa verið sérstakir gallar á starfi þeirra, sem hæstv. forsetum er kunnugt um, en mér sem þingmanni ekki, og sem einhverjum öðrum þm. kann að vera kunnugt um.