21.12.1935
Efri deild: 102. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2457 í B-deild Alþingistíðinda. (206)

Starfslok efri deildar

forseti (EÁrna):

Þá er nú störfum þessarar hv. deildar lokið að þessu sinni. Ég vil þakka öllum hv. þdm. fyrir samvinnuna á þessu þingi. Mér er sönn ánægja að minnast þess, hve ágæt hún hefir verið í alla staði. Hafa hv. þdm. sýnt mér samhug og umburðarlyndi í mínum störfum. - Þeim hv. þdm., sem dvalið hafa hér fjarri heimilum sínum, óska ég góðrar heimferðar og heimkomu, og öllum hv. þdm. óska ég svo gleðilegra jóla.