21.12.1935
Efri deild: 102. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2457 í B-deild Alþingistíðinda. (207)

Starfslok efri deildar

Jón Baldvinsson:

Það er víst óhætt í nafni allra hv. þdm. að þakka hæstv. forseta fyrir góða, réttláta og lipra forsetastjórn á þessu þingi. Hann mun nú bráðlega leggja í langa ferð heimleiðis, og óska ég honum góðrar heimferðar, einnig gleðilegra jóla og farsæls nýárs. Veit ég, á allir hv. þdm. taka undir þessar óskir mínar. (Allir þdm. stóðu upp.)