08.11.1935
Neðri deild: 68. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1295 í B-deild Alþingistíðinda. (2080)

87. mál, eignarnámsheimild landa í Hafnarfirði

Ólafur Thors:

Það er alveg eðlilegt, að hv. flm. og frsm. n. geti ekki gengið inn á, að umr. um þetta mál bíði von úr viti, eða bíði þess endilega, að hv. þm. Barð. verði orðinn heill heilsu. Ég þakka hv. flm. fyrir góðar undirtektir undir frestunartill. mína. Meira vil ég ekki fara fram á en að málinu verði frestað um örfáa daga.