14.11.1935
Neðri deild: 73. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1296 í B-deild Alþingistíðinda. (2084)

87. mál, eignarnámsheimild landa í Hafnarfirði

Ólafur Thors:

Ég vil aðeins fara fram á það við hæstv. forseta, að hann taki þetta mál ekki fyrr en nr. 2 á dagskránni. Það er smábrtt., sem mér hefir borist ósk um að flytja frá ráðamönnum Garðahrepps. Ég hefi borið hana undir flm. frv., og hann telur hana ekki skipta miklu máli, og ég hygg hún eigi vissan framgang, ef mér gefst tækifæri til að undirbúa hana og skrifa hana niður.