18.02.1935
Efri deild: 5. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 13 í B-deild Alþingistíðinda. (21)

Kosning fastanefnda

Jón Baldvinsson:

Það hefir stundum verið gert, þegar slíkar till. hafa komið fram sem þessi, að fyrst hefir verið kosin n. með þeirri tölu þm., sem lög mæla fyrir, en síðan hefir verið bætt mönnum í n., ef þörf hefir þótt til þess, og tel ég, að sú aðferð sé heppilegust einnig í þetta sinn. Þó gefið væri fundarhlé nú, mundi ég ekki geta svarað fyrir minn flokk, með því að Alþfl.menn. er sæti eiga í hv. Nd., sitja þar á fundi, enda alltaf hægt að taka till. hv. 10. landsk. til athugunar síðar.