28.11.1935
Efri deild: 81. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1306 í B-deild Alþingistíðinda. (2138)

53. mál, ríkisborgararéttur

Bernharð Stefánsson:

Mig langar til þess að flytja brtt. við frv., eða a. m. k. að biðja hv. allshn. að athuga um mann, en frá honum lá reyndar fyrir umsókn í fyrra. En þar sem ég er ekki viðbúinn með brtt. og n. hefir ekki gefizt kostur að athuga hana, þá vil ég mælast til þess við hæstv. forseta, að málið verði tekið af dagskrá núna.