06.12.1935
Efri deild: 88. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1351 í B-deild Alþingistíðinda. (2194)

136. mál, sameining Blönduóskauptúns í eitt hreppsfélag

Forseti (EÁrna):

Það hefir komið fram ósk frá form. n., sem hefir málið til athugunar, um að taka það út af dagskrá. Ég veit að vísu ekki, hvort öll n. stendur að því, en þar sem fá mál eru á dagskrá á morgun og þá mun verða hægt að ljúka málinu, vil ég verða við þessari ósk, ef enginn mælir því á móti.