19.11.1935
Efri deild: 73. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1365 í B-deild Alþingistíðinda. (2214)

167. mál, Kreppulánasjóður

Frsm. (Bernharð Stefánsson):

Þegar þetta mál var til 1. umr., gerði ég grein fyrir efni þess og þarf engu þar við að bæta. Í nál. landbn. á þskj. 556 mæli ég eindregið með því að frv. verði samþ., og sama mun vera að segja um hv. 2. þm. Rang., en hann var ekki á fundi, er málið var afgr. í n., og hefir því ekki skrifað undir nál. Hinsvegar hefir hv. 4. landsk. sérstöðu í málinu.