09.12.1935
Efri deild: 90. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1398 í B-deild Alþingistíðinda. (2311)
189. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Frsm. (Magnús Jónsson):
Eins og frv. kom upphaflega fram, er efni þess það, að koma á sömu reglu um frest til framtals í öðrum kaupstöðum eins og er í Rvík. Við meðferð þess í hv. Nd. voru sett inn 2 ákvæði, eftir tillögum ríkisskattanefndar, sem fjhn. þessarar hv. d. hefir fallizt á, og n. leggur því einróma til, að frv. verði samþ. óbreytt.