18.02.1935
Efri deild: 5. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 14 í B-deild Alþingistíðinda. (24)

Kosning fastanefnda

Jónas Jónsson:

Af þeim ástæðum, er ég áðan tók fram í sambandi við kosningu hv. landbn., vil ég óska þess, að allshn. verði að þessu sinni skipuð 5 mönnum. m. ö. o. að fjölgað verði um tvo menn í n. Miðað við þau mál, sem n. mun fá til meðferðar, mun henni ekki veita af þeim auknu starfskröftum.