22.11.1935
Neðri deild: 80. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1446 í B-deild Alþingistíðinda. (2417)

150. mál, Brunabótafélag Íslands

Frsm. (Héðinn Valdimarsson):

Það er einkennilegt, ef Brunabótafél. tapar stórum á því, sem kallað er beztu tryggingarnar, en það eru húseignir. Áhættan fyrir varasjóði kaupstaða og sveita er ekki mikil. Ef áhætta er, þá græðist aftur á móti meira á stað eins og Rvík heldur en öðrum stöðum.