16.12.1935
Efri deild: 96. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1456 í B-deild Alþingistíðinda. (2435)

150. mál, Brunabótafélag Íslands

Frsm. (Ingvar Pálmason):

Þetta mál var tekið af dagskrá á laugardaginn, svo að allshn. gæti athugað brtt. Þær voru svo teknar fyrir í gær, og leggur meiri hl. n. á móti þeim en einn nm. býst við að geta fallizt á eitthvað af þeim. En nú hefir verið útbýtt nýjum brtt. í framhaldi af hinum, og lítur helzt út fyrir, að það sé gert í þeim tilgangi einum, að tefja málið á síðustu stundu. (PM: Þessar brtt. lágu fyrir skrifl. á laugardaginn). Meiri hl. n. leggur á móti þessum till.