30.11.1935
Neðri deild: 87. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1462 í B-deild Alþingistíðinda. (2448)
186. mál, bæjarstjórn í Neskaupstað
Hannes Jónsson [óyfirl.]:
Ég skil ekki, hver er raunverulega tilgangur þessa frv. Eftir grg. að dæma lítur út fyrir, að ef embættunum yrði skipt, yrði minni vinna við þau en ef þau eru sameinuð. Ég fæ ekki séð, hvernig það megi verða. Þessi maður hefir nú 2 menn sér til aðstoðar í skrifstofunni, sem eru launaðir af bæjarsjóði. En svo hefir hann auk þess 2500 kr. úr ríkissjóði í skrifstofufé. En til hvers er það, ef hann þarf þess ekki til mannahalds? Mér finnst eftir þessum upplýsingum, sem hér liggja fyrir, ástæða til að athuga l. um skrifstofufé sýslumanna, því að vitanlega er ekki ætlazt til þess, að skrifstofuféð eigi að létta réttmætum gjöldum af bæjarsjóði.
Ég hefði haft löngun til þess að heyra nánar skýrt frá þessu máli, skýrt frá því, sem raunverulega hlýtur að liggja til grundvallar fyrir því, því að það getur ekki verið það, sem nefnt hefir verið, að það sé svo mikil þörf á að skipta ekki umfangsmeira embætti en þetta er. Kostnaðaraukinn við þetta getur orðið talsverður, því að það mun ekki líða á löngu, þangað til hvor þessara embættismanna fyrir sig verður að fá aðstoðarmann, og l. um skrifstofufé embættismanna gera ráð fyrir því hreint og beint, að bæjarfógeti verði að hafa aðstoð í embætti sínu, og ég geri ekki ráð fyrir, að sú þörf hafi minnkað síðan 1933.
Hér er að vísu ekki að ræða um mikla aukningu á útgjöldum ríkissjóðs til að byrja með, en ég býst við, að það geti farið hækkandi, enda trúi ég því vart, að þessi embættismaður sætti sig við 3600 kr., þegar hann hefir haft 2500 frá ríkissjóði og 3000 frá bæjarsjóði, eða samtals 5500 kr. Ég trúi því ekki, að hann sætti sig við, að launin lækki þannig um nærri því 2000 kr. Þetta er, hygg ég, gert til þess að gera framkomu frv. líklegri nú í svipinn, láta þetta spor vera þannig, að það sé sem léttast fyrir þingið að stíga það. Að vísu er hér um lítið mál að ræða, en það er ekki það, sem hér skiptir mestu máli, heldur stefnan, sem mér finnst vera varhugaverð, þar sem á að skipta störfum, sem eru ekki meiri en teljast verður hæfilegt, að einn maður geti leyst af hendi með þeirri sjálfsögðu aðstoð, sem öllum þessum embættum fylgir, hvað sem hver segir um það.
Ég fyrir mitt leyti treysti mér ekki til að fylgja þessu frv.
Þó að hér sé ekki um stór útgjöld að ræða, þá tel ég, að hér sé um svo mikilsverða stefnubreyt. að ræða, að ekki megi láta málið fara áfram athugasemdalaust og með hálfgerðum ef ekki fullkomnum blekkingum um það, hverjar afleiðingar það hafi fyrir ríki og bæjarfélag.