06.12.1935
Neðri deild: 92. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1480 í B-deild Alþingistíðinda. (2487)

80. mál, nýbýli og samvinnubyggðir

Hannes Jónsson:

Ég vil benda hæstv. forseta á, að þó ég taki oft til máls, held ég ekki langar ræður, og skal ég ekki eyða hér löngum tíma, ef málið er rætt að degi til, en ég vil benda á, að hér tala ég einn fyrir minn flokk og hlýt því að skilgreina afstöðuna nokkuð glöggt.