06.12.1935
Neðri deild: 92. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1624 í B-deild Alþingistíðinda. (2577)

131. mál, alþýðutryggingar

1) MT:

Ég tel alls ekki tilgangslaust að greiða atkv. um þessa gr. og þær gr., sem eftir eru af þessum kafla, sökum þess að ekki er enn fullnaður meðgöngutími þessara gr., ekki aðeins í þessari hv. d., heldur í hv. Ed., en þó sérstaklega fyrir það, að þó sumar þeirra hljóti fæðingu hér í d., en aðrar verði drepnar, þá geta þær gengið aftur í hv. Ed., og því er ekki tilgangslaust að greiða atkv. um þennan kafla, og þar á meðal ýmsar merkilegar brtt. við hann, sem rétt er, að greidd verði atkv. um, og segi ég því já.