06.12.1935
Neðri deild: 92. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1625 í B-deild Alþingistíðinda. (2579)

131. mál, alþýðutryggingar

Forseti (JörB):

Ég vil benda hv. þm. Snæf. á það, að engin grein hefir verið undan felld við atkvgr. og að búið er að ganga til atkv. um hverja grein innan kaflans. Þar sem meiri hl. d. hefir samþ. greinarnar og mundi samþ. kaflann þó að hann væri borinn upp í heild, þá er þetta í raun og veru að greiða tvisvar atkv. um það sama. verður því ekki gengið til atkv. um kaflann.