07.12.1935
Sameinað þing: 27. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 206 í B-deild Alþingistíðinda. (259)

1. mál, fjárlög 1936

Forseti (JBald):

Ég vil skýra frá því áður en 1. frsm. tekur til máls, að fjvn. hefir skipt fjárlagafrv. milli þriggja frsm., og er ætlunin, að þeir tali allir í dag, ef tími vinnst til, en síðan verða fjárl. til umr. í einu lagi. Annars þyrftu þeir hv. þm., sem flytja brtt. við alla kafla frv., að taka til máls við hvern kafla fyrir sig, svo þetta fyrirkomulag ætti að spara ræðutímann nokkuð.