21.11.1935
Neðri deild: 79. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1697 í B-deild Alþingistíðinda. (2648)

40. mál, iðnaðarnám

Frsm. meiri hl. (Emil Jónsson):

Iðnn. varð ekki sammála um afgreiðslu þessa máls. Meiri hl. leggur til, að frv. verði samþ. eins og það liggur fyrir óbreytt, en minni hl. vill gera á því nokkrar breyt. Ég sé ekki ástæðu til að hafa um þetta fleiri orð, en ég get sagt það fyrir mig persónulega, að ég get gengið inn á sumar brtt. minni hl., en alls ekki allar eins og þær liggja fyrir.