23.11.1935
Neðri deild: 81. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1700 í B-deild Alþingistíðinda. (2654)

40. mál, iðnaðarnám

Frsm. minni hl. (Guðbrandur Ísberg):

Við 2. umr. þessa máls var samþ. brtt. við 8. gr. frv., en þess þá eigi gætt, að með þeirri breyt. fell niður ákvæði um það, að setja skyldi reglugerð um bóklegt nám. Þetta ákvæði fell niður án þess að til þess væri ætlazt, enda mátti það ekki tapast úr lögunum, þar sem í nokkrum öðrum gr. frv. er vísað til þessarar reglugerðar. Ég hefi því flutt brtt. á þskj. 595 um að bæta þessu ákvæði um reglugerðina aftur inn í, og óska ég, að brtt. verði samþ.