17.12.1935
Neðri deild: 101. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1760 í B-deild Alþingistíðinda. (2763)
73. mál, fangelsi
Ólafur Thors:
Það er nú upplýst, að hv. frsm. er fjarverandi. í allshn. er einn maður, sem hefir sérstöðu, hv. þm. Snæf., og eins og hæstv. forseta er kunnugt, þá hefir hann verið á fundi í dag, þó hann sé ekki heill heilsu, en hefir ekki komið núna í kvöld. En núna í þessu er ég að heyra það, að hv. þm. Snæf. sé á leiðinni hingað, og ef svo er, að hann kemur, þá óska ég eftir því, að hv. frsm. verði líka viðstaddur, svo við getum heyrt eitthvað um málið frá báðum hliðum.
Það er sagt málinu til framdráttar, að það sé flutt af hv. 1. þm. Skagf., hv. þm. Dal. og hv. þm. S.-Þ. Það er alkunnugt um börn, að þau geta verið hið versta úrhrak, þó annað foreldrið sé mannvænlegt, ef hitt er illt. Og ég treysti því aldrei, að frv. séu góð, sem komin eru frá hv. þm. S.-Þ., enda þótt ágætir menn, eins og hv. 1. þm. Skagf. og hv. þm. Dal., standi að þeim með honum. Ég vil a. m. k. heyra einhverja aðra, sem ég met eins mikils, færra rök fyrir þessu máli.