18.12.1935
Neðri deild: 102. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2021 í B-deild Alþingistíðinda. (2947)

32. mál, loftskeytastöðvar í skipum

Frsm. 1. minni hl. (Páll Þorbjörnsson) [óyfirl.]:

Ég er þakklátur þeim hv. 6. þm. Reykv. og hv. þm. Vestm. fyrir það, að þeir hafa fallizt á að taka aftur brtt., og ég get lýst yfir því, að frá minni hendi og frá hendi hinna, sem staðið hafa að þessu frv., er ekkert því til fyrirstöðu, að þessu sé breytt úr 125 vöttum niður í 75.

Ég hefi ekki meira við þetta að bæta, en ég vona, að málið nái fljótt fram að ganga.