16.11.1935
Neðri deild: 75. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2095 í B-deild Alþingistíðinda. (3032)

83. mál, bráðabirgðaverðtollur

Frsm. (Emil Jónsson):

Það er stutt aths. Frá iðnn. hefir komið brtt. á þskj. 561, sem nýlega hefir verið útbýtt, og er þar lagt til, að orðið „gólfklútar“ komi inn í e-lið frv. Bætist sú till. þá við 1. brtt. í nál. á þskj. 529. Ég veit ekki, hvort ég tók þetta nógu skýrt fram áðan, og vil því vekja athygli hv. þdm. á þessu.