09.12.1935
Efri deild: 90. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2237 í B-deild Alþingistíðinda. (3214)
172. mál, Ferðaskrifstofa ríkisins
Frsm. meiri hl. (Sigurjón Á. Ólafsson) [óyfirl.]:
Ég get verið fáorður. Vil þó segja örfá orð út af framkomnum brtt.
Á þskj. 724 eru við frv. 3. brtt. frá hv. 1. þm. Reykv. Í 2. brtt. sinni þar leggur sá hv. þm. til, að tveir síðustu málsl. 5. gr. frv. falli niður. En nú liggur fyrir önnur brtt. á þskj. 711, frá hæstv. forsrh., sem er a. n. l. sama efnis og brtt. hv. 1. þm. Reykv., nefnilega um það, að síðasti málsliður 5. gr. frv. falli burt. Um þennan síðasta málslið, sem hv. 1. þm. Reykv. vill fella niður, og hæstv. forsrh. gerir einnig till. um niðurfellingu á, vil ég segja það, að ég sé ekki neina bættu í því fólgna, þó að þessi heimild standi í l. eins og til er ætlazt, um það, að ferðaskrifstofan geti aðvarað gistihús um að halda eftir plássi handa útlendum ferðamönnum, sem von er á til gistihússins. En sumum hv. þm. finnst þetta ákvæði óviðkunnanlegt. Og þar sem tveir flokkar virðast ætla að leggjast á eitt um þetta atriði, geri ég ráð fyrir, að brtt. hæstv. forsrh. verði samþ. Það rýrir vitanlega ekki mikið gildi frv. í heild, þó að þessi brtt. verði samþ.
Ég get ekki fallizt á, að næstsíðasti málsl. 5. gr. falli niður, eins og hv. 1. þm. Reykv. gerir þó till. um. Það hefir verið á það bent, að full nauðsyn sé á því, að gistihús hafi aðhald um að viðhafa allt hreinlæti. Mun ég því greiða atkv. á móti brtt. hv. 1. þm. Reykv.
Þá liggur fyrir brtt. frá hv. 2. þm. S.-M. á þskj. 732, við 8. gr. frv. Það hefir komið fram í ræðum sumra hv. þm., að þeir álíti 8. gr. frv. óþarfa. En slíkt er misskilningur. Í 8. gr. er heimild til þess, að hægt sé að hafa nákvæmt eftirlit um það, hvað ferðaskrifstofunni beri að innheimta af gjöldum. Í 8. gr. er ekkert annað tekið fram en að afhenda skuli jafnan farþega, er fluttur er í bifreið gegn greiðslu. farseðil með áletraðri upphæð þeirri, er greiða ber, enda sé farseðillinn stimplaður o. s. frv. Það er full nauðsyn á þessari heimild, til þess að ferðaskrifstofan geti á hverjum tíma vitað, hvað henni hér af því gjaldi, sem 8. gr. getur um. Í 9. gr. eru svo ákvæði til þess að fyrirbyggja, að prettazt verði um að framfylgja ákvæðum 8. gr.
Ég vænti þess, að brtt. á þskj. 732 verði samþ. Tel ég ekki þörf á að fara frekar út í þann ágreining, sem var á milli nefndarhlutanna um frv. og málið í heild.