16.12.1935
Neðri deild: 100. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2241 í B-deild Alþingistíðinda. (3227)
172. mál, Ferðaskrifstofa ríkisins
Forseti (JörB):
Það er ekki rétt hjá hv. þm. Vestm., að ég fresti kvöldfundum í þinginu til þess að stjórnarflokkarnir geti haft flokksfundi, þegar þeir óska þess. Ég hefi oft eyðilagt flokksfundartíma þeirra líka, með því að hafa þingfundi þau kvöld, sem þeir eru vanir að halda flokksfundi. En hinsvegar hefi ég eftir föngum reynt að taka til greina óskir Sjálfstfl. um flokksfundartíma.