13.12.1935
Efri deild: 94. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2323 í B-deild Alþingistíðinda. (3314)

199. mál, Kreppulánasjóður

Ég vildi mælast til, að málinu yrði, að lokinni þessari umr., vísað aftur til allshn., sem hefir flutt frv., svo að hún geti athugað það, að það er ein gr., sem þarf að breyta. (MG:

Hvaða gr?). Það er 8. gr. Ég býst við, að þar þurfi að koma inn ábyrgð ríkisins fyrir tryggum greiðslum, svo að sama gildi um þennan nýja flokk og önnur bréf Kreppulánasjóðs, að mest á eftir skuldabréfum fl. komi til tryggingar ábyrgð ríkissjóðs.