21.12.1935
Neðri deild: 105. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2323 í B-deild Alþingistíðinda. (3321)

154. mál, verslun með kartöflur og aðra garðávexti

1) HannJ:

Ég er samþykkur efni frv. í aðalatriðum, en hinsvegar óánægður með skipun stjórnar verzlunarinnar. Ég óttast að með þeim hætti sé verzlun með þessar vörur stofnað í háska eins og raun hefir orðið á um aðrar framleiðsluvörur. Mun ég því sitja hjá við atkvgr.