16.12.1935
Efri deild: 96. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2325 í B-deild Alþingistíðinda. (3322)
199. mál, Kreppulánasjóður
Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):
Ég er samþykkur till. n., en hefi við athugun komizt að þeirri niðurstöðu, að réttara sé að bæta inn í 9. gr., þar sem taldar eru upp skuldir þær, sem ekki er hægt að krefjast að fá að greiða með skuldabréfum, en það eru skuldir, sem tryggðar eru með fasteigna- og handveði. Sumir kaupstaðir hafa skuldir sínar tryggðar með ríkisábyrgð, og ætti hið sama að gilda um þær. Hin brtt. er við brtt. á þskj. 842, um skuldir sveita, þar sem talað er um sama efni.